er alveg komin með upp í kok af öllu. skólanum, vinnunni, bílnum, veðrinu, rúminu, sjónvarpinu og svo framvegis. you get the picture. veit ekki hvernig ég á að fara að því að losna við þetta. reyndar er að koma helgi þannig að þá er frí í skólanum, svo eru dillidagar í næstu viku. þeir eru held ég ágætir. næst kemur eitthvað. nenni ekki að spá í það..
það verður samt örugglega gaman um helgina. mikið að fara að gerast. allir að fara á stjá.
"pabbi, viltu segja okkur ævintýrið um Hans og Grétu, já geeeerðu það?"
fórum inn á laugar í gærkvöldi, áttum menningar samræður þar við eldri systur mína. mjög fræðandi og skemmtilegt. ég veit ekki hvað ég á að segja, allt gengur sinn vanagang eins og vanalega og það er held ég ekkert að fara að breytast, nema ég hreinlega breyti því.
ótrúlegt, maður er alltaf að bíða eftir því að þetta gerist og hitt gerist og gleymir því að njóta þess að vera á þessum stað á þessum tíma. er mikið í því þessa dagana að bíða. það er alls ekki gaman að bíða. mér finnst samt gaman að vona. og hafa væntingar. ef þær standast. skemmtilegt að upplifa það sem maður var að vonast að mundi gerast.
það er svo leiðinlegt að detta. detta og falla í prófi.
it's only in your mind.
nenni ekki meira. er að missa vitið.